Leit

Auglýsing

Ćvintýrakappi međ meiru!

10. október 2007 klukkan 18:50
Um daginn, nánar tiltekið klukkan fimm á föstudaginn síðastliðinn, skrapp ég í svokallað danskt “Adventure race” og er mjög líklega eitthvað sem ég geri aldrei aftur en ég ætla að fara aðeins í gegnum ferðasögu mína yfir þetta “ævintýrakapp”

Skipt var nemendum skólans í 20 lið, 4 í hverju liði. Ég var í liði með Bayuk, grænlenskum skakkatanna strák, Lisu og Michaelu dönskum hnátum. Þetta taldi ég vera fínasta lið. Tveir keppendur fóru á hjóli og línuskautum til næsta bæjar þar sem race’ið byrjaði en hinir tveir fóru með rútu.
Þegar þangað var komið var okkur strax hent í Orientering run (einhverskonar ratleikur eftir korti) um bæinn og voru nokkrir staðir á kortinu mertkir inn. Strax í fyrsta task’inu stoppaði einn okkar liðsmeðlimur vegna “slæmra hnjáa” svo þar fóru sigurmöguleikar okkar. Því ákváðum við að láta okkar för einkennast af skemmtun.

Adventure race liðið mitt
Adventure race liðið mitt; Ég, Lisa og Bayuk

Ég nenni ekki að fara svona ítarlega í ferðalagið en það var heldur betur langt og strangt. Samtals var ferðast 58 km á vegum Sjálands og svo fyrir utan það var töluvert af þrautum sem þurftu að leysa einsog Orientering hlaupin og því var talið að samtals hefði þetta verið um 70 km ferðalag allt í allt. Ég komst að því að ég get línuskautað án þess að meiða mig í bakinu og vakti það upp mikla gleði!
vinaliðið okkar
Vinaliðið okkar, sem rölti með okkur í blíðunni á ströndinni: Julie, Lærke, Bolec og Simon

Ég ætla að fara yfir það í puntkum það helsta sem við gerðum:
• Ferðuðumst mikið á götum Danmerkur, hjólandi, skautndi og hlaupandi
• Þurftum að fara í Orientering Run í svartamyrkri í einhverjum skógi með fullt af brenninetlum og trjám. Spooky stemmning, einsog Bayuk sagði: “Wow, this is like Blair witch project”.
• Vaða 100m í sjónum, synda 50m í sjónum og vaða 100m um hánótt. Semsagt ferðast 250m í ísköldum sjónum um hánótt.
o Tvær stelpurnar sem voru á þessari stöð á sama tíma og ég gerðust meira að segja svo kaldar að fara naktar, því þær voru ekki með sundföt :D
• Sofa úti á dýnu í svefnpoka
• Vakna í skítakulda
• Svo kom sólin og þá var þetta æææðislegt
• Labba einhverja kílómetra á ströndinni í glampandi sól
• Leysa leiðinda landafræðikort
• Koma heim í heitt kakó, brauð og fleira gúmmelaði eftir að hafa verið úti í ca. 24 klukkutíma

Adventurerace fólk
Malte, Laura og Lisa að snæðingi... Ekki voru matpakkarnir sem maður gat gert sér neitt til að hrópa húrra fyrir.

Mitt lið endaði næsta síðast en við höfðum ótrúlega gaman og í sólinni á ströndinni höfðum við það bara gott og vorum ekkert að keppast, frekar að hafa gaman vegna þess að einn meðlimur hafði hætt og því töldum við að við gætum ekki unnið.

Þetta er svona það helsta og var þetta án efa ótrúleg lífsreynsla og mjög gaman. Þó ég telji það ekki líklegt að ég muni gera eitthvað líkt þessu aftur.

Um kvöldið var svo að sjálfsögðu partý. Var þetta samt sem áður rólegasta partý því allir voru þreyttir eftir langt og erfitt hlaup. Ég fór einna síðastur í háttinn og var klukkan þá ekki nema 2. Áður en ég fór að sofa bauð ég samt Tim og Malte í kókómjólk og kökur og spjölluðum við yfir kakói og kexi um allt og ekkert. Góður endir á góðum löngum degi.

simon og jonas fúsballin
Danir eru skuggagóðir í fúsball, Simon og Jonas spilandi í partýinu

Fie og Mikolaj dansa
Mikolaj og Fie dönsuðu einsog vitleysingar...

Simon búinn að sanka að sér kvenfólki
Simon, hnakki skólans búinn að sanka að sér kvenfólki: Fie, Emma og Karina

Í gær gerði ég líka eitthvað sem ég býst ekki við að gera aftur. En við lögðum af stað tólf ferskir krakkar og 3 kennarar/leiðbeinendur til einhvers bæjar á Fjóni. Við sem erum í áfanganum “Gamle Leger” - Gamlir leikir áttum að kenna þar einum skóla. þegar mætt var á staðinn biðu okkar rúmlega 300 krakkar allt frá 0. bekk upp í 9. Hóparnir voru jafn misjafnir og þeir voru margir og því mjög erfitt að leiðbeina sumum en auðvelt að leiðbeina öðrum. Ég talaði meira að segja fullt af dönsku og skildu krakkarnir mig í flestum tilvikum. En þetta var gaman og ég lærði án efa mikið á þessu.

Á föstudaginn fer ég svo með sama hóp til Kaupmannahafnar að prófa einhvern nýjan GPS-roleplaying-gamaldags leik á einhverju safni. Ég gæti fengið það hlutverk að vera sonur bóndans, sonur malarans eða eitthvað álíka. Lýsi því betur þegar ég hef upplifað það.

Svo á Sunnudaginn fer ég til Tékklands í viku. Það verður frábært held ég, við komum til með að vera á fjallahóteli og stunda ýmsa iðju yfir daginn í fjöllunum, þ.á.m. klifur, hanga í reipum og stökkva á milli þeirra og eitthvað í þvílíkri hæð, fara á bobbsleða á hjólum og svo fáum við að vera síðasta daginn að dunda okkur í Prag. Ég tek myndavélina að sjálfsögðu með mér og sýni ykkur betur þegar ég kem heim aftur.

Ég kveð því að sinni og vonandi hafið þið haft gaman af lesningunni...
Tim sposkur á svip
Tim sposkur á svip

Razz - Kickflipper yeah!

23. september 2007 klukkan 13:47
Jahá, Pálmi hinn danski skrifar á ný...

Þetta verður stutt og laggott því ég hef ekki frá miklu skemmtilegu að segja og ég nenni ekki að gera langt innihaldslaust blogg um ferðir mínar, en ég nenni að gera stutt innihaldslítið blogg um ferðir mínar ☺

Eplagarðurinn
Eplatrésgarðurinn í skólagarðinum, fresh epli when ever you want!

Ég lofaði myndum í næsta bloggi, ég verð bara að stela myndum frá Þórfríði því ég fann ekki myndavélina sem mér langaði í á nógu hagstæðu verði í Kaupmannahöfn, ætla að hjóla til Slagelse á morgun og reyna að finna El-Giganten (svipað og BT)

Klappstýrur skólans
Frægi gæjinn í skólanum, var víst einhver barnastjarna í Danmörku og var algjör 12-13 ára gamalla stelpna segull. Hér er hann með vini sínum að hvetja fótboltaliðið til dáða (Klappstýrur liðsins)
Razz - Kickflipper


Hann er einnig alltaf að sýna sig í salnum.. nóg af karetekicks og eitthvað

Virku dagarnir ganga einsog venjulega, íþróttir, matur og svo að lokum auðvitað “skal man hygge sig”. Finn skólameistari, 60 ára gamall ótrúlega hress kall, átti afmæli núna í vikunni og því var “reception” á föstudeginum, boðið var upp á ekta danska “veislu” - Pinnamatur, bjór, gos, Hvít-, Rauð- og Rósavín og var það frábært. Þessi helgi var heimferðarhelgi hjá dönsku krökkunum og því var mikið um “útlendinga” hér, Pólverjar, Íslendingar og Tékkar. Því ákváðum við Íslensku krakkarnir að skreppa til Kaupmannahafnar og höfðum gaman af, glampandi sól og mikil gleði einkenndi þá ferð. Verslaði mér skyrtu og bol og svo fórum við í Tívólí þar sem adrenalínið fékk að streyma um líkamann.

Finn, Þórfíður og Sam
Finn skólameistari, Þórfríður og Sam - Kennarinn sem allar stelpurnar eru að missa sig yfir.

Íslensku stelpurnar
Íslensku stelpurnar að Snædísi fráskilinni.

Í dag er sunnudagur og allir Danirnir heima, því ákváðum við Saga að fara að lyfta og ætla ég að láta stelpuna púla og einnig mun ég sjálfur taka veel á og þyngja mig aðeins. Einnig er þvottadagur í dag og er ég að bíða eftir að stelpurnar taki sig til og nenni að koma að þvo með mér.

Hnakkinn
Og að lokum, hnakki skólans... Vel tanaður, stinnir upphandleggir, stripur og hár uppí loft!

Pálmi er kominn með nóg, kem með sjóðheitar danskar fréttir síðar!


Myndir fengnar af www.blog.central.is/toffa-dk , fleiri myndir þar... Tjekkit!

Ligeglad i Danmark...

17. september 2007 klukkan 20:52
Danmörk, Danmörk, Danmörk... Líf mitt þessa dagana og næstu þrjá mánuðina mun eiga við þetta frábæra land. Reyndar skreppi ég í Evrópuferð þar sem keyrt verður í gegnum nokkur lönd (veit ekki hvaða leið er farin) og til Tékklands.

Ég ætla að blogga meðan ég er hér úti en geri það ábyggilega ekki oft svo ekki byrja að suða í mér, ég ætla bara að gera innihaldsmikil og vonandi skemmtileg blogg til að segja frá þessari lífsreynslu minni.

Síðustu dagar eru í stuttu máli sagt - íþróttir, rólegheit og ferðalög.

Fyrir tveimur vikum, aðfaranótt mánudagsins 3. sept lagði ég af stað suður á bóginn til hinna bjórdrekkandi, ligeglad og ofsakátu Dana. Þegar ég kom í skólann, búinn að vaka alla nóttina á þessu langa ferðalagi tók ég strax þátt í sjálfsvarnaríþróttum og sundi... En ég ætla ekki að gera þetta að löööngu svona bloggi um hvern dag, fer í fljótu yfir annars mjög skemmtilega viku:
• Mikið af faðmlögum og fólk látið leiðast
• Allskonar leikir til að kynna fólkið fyrir hvort öðru
• Allir voða glaðir og vinalegir
• Miiikill matur, kaffi, te og endalaust brauð
• Spilaði breskt “Cricket” og er það snilld, setning skólans kom úr þeim leik og er hún notuð í öllum íþróttum, allt frá Billiard til fótbolta:
o “Now that’s cricket”
• Og svo síðast en ekki síst → Íþróttir, nóg af þeim.

Ég var hér í Danaveldi frá sunnudegi til föstudags og flaug þá aftur heim til að heyja einvígi við BÍ/Bolungarvík og höfðum betur samanlagt 4-2 (3-0 heima, 2-1 tap úti). Æðislegt að tryggja sig upp í aðra deild, fórum erfiðu leiðina en að lokum var það enn sætara. Slakaði á á milli leikja og fékk góðan félagsskap ☺
Á leiðinni heim var djammað og djúsað, haldið upp á sigurinn og gerðist ýmislegt, t.d. sáust 4 drengir naktir á Hólmavík hlaupandi um göturnar og var það án efa fyndið!

Ég er aftur kominn til Danmerkur og var ótrúlega leiðinlegt að kveðja strákana í liðinu, fjölskylduna og alla nánu vinina. Ég á eftir að sakna Íslands, það er alveg pottþétt en ég tel samt sem áður að þetta haldi áfram að vera frábært hér. Er einn í herbergi og hef það notalegt.

Nú er klukkan að verða ellefu og eftir eins mikla erfiðisdaga einsog daginn í dag, spiluðum leik með fótboltaliðinu og setti kallin 2. Sem þýðir að ég er kominn með 4 mörk í 2 leikjum hér í Danmörku.

Þetta er komið nóg í bili, fer til Kaupmannahafnar á laugardaginn með skemmtilegu íslensku vinum mínum hér í Gerlev og ætla ég mér að kaupa mér myndavél, þetta blogg er það hráasta sem ég skrifa hingað, ég loofa því... Kem til með að segja frá skemmtilegu atburðunum en ekki bara þessum normal dögum einsog ég lýsti að einhverju leyti hér.

Venlig hilsen,
Pálmi Þór

Lag síðustu daga: Leikmenn m.fl. KK Tindastóls - Tindastóll upp í 2.deild Hlæjandi

Sumarliđi er fullur!

20. júlí 2006 klukkan 05:22
Já, Pálmi Þór er vakandi, ótrúlegt en satt.. Aðalástæðan fyrir því er samt að mig langar að heyra úrslitin úr Rocstar:Supernova
Þessi þáttur er helvíti mikið fíkniefni, maður vill sjá úrslitin og tel ég aðalástæðuna vera Magna. Hann er að meikaða feitast drengurinn og finnst mér það bara snilld! Nú ætla ég að segja litla sögu um afrek mín á balli hjá Magna.. Þar eru tvö skondin atvik sem standa uppúr:

Það fyrra:
Ég er staddur á Ísafirði um Verslunarmannahelgi, ástæðan fyrir því að ég var á þessum fjarlæga stað um Versló var einmitt unglingalandsmót. Um Verslunarmannahelgar er alltaf selt allskonar drasl sem yfirleitt annars væri ekki selt, einsog glóandi hálsfestar, dót sem blikkar og hvaðeina.
Magni og hljómsveitin hans, Á móti sól tróðu upp á laugardagskvöldið að mig minnir og var þrusustemming, allir litlu krakkarnir edrú og að skemmta sér konunglega. En stíg ég þá ekki einhvern hlut, ég ath. hvað þetta er og þá kemur í ljós að þetta er eitt af þessu blikkandi drasli, blikkandi snuð sem hafði farið undir skóna hjá allskyns fólki tel ég, því það var brotið. Ég tek það upp, kveiki á ljósinu í því og þrykki því uppá svið
Brosandi Haldiði ekki að Magni, þessi heimsfrægi maður, taki það upp... Það líður ekki að löngu þangað til að maðurinn stingur því uppí sig við mikinn fögnuð minn, ég ætlaði ekki að hætta að hlæja, þetta var ofboðslega fyndið

Það seinna:
Ég er staddur í Miðgarði, þeim frábæra stað á balli með Á móti sól. Mikið af fólki er á ballinu og allir að djamma og tjútta á fullu og auðvitað var ég einn af þeim. Árni bróðir hafði einmitt verið nýkominn frá USA og keypt þetta fína Fossil úr handa mér, með ól sem hægt var að skipta um (úrið fest á ólina með smellum). Ég er þarna í góðum fíling en tek allt í einu eftir því að úrið er horfið af ólinni. Ég panika og leita um öll gólf en enginn er árangurinn... Þannig að ég ætlaði að þykjast klár og reyna að ná í tærnar á Magna og biðja hann um að auglýsa úrið, ég teygji mig og teygji og rétt næ að strjúka skónna hans en næ engu sambandi við hann, ekki nema það að hann brosir til mín einsog ég sé einhver algjör grúppía.. mér leið ekki vel
Fýldur

Já, ég og Magni eigum fortíð og ætla ég að publisha fyrri söguna útum allan heim ef hann kemst alla leið í þessum þætti...

Fólk er að tala um að ég sé ekki nógu duglegur bloggari og því ætla ég að svara þessum gagnrýnisröddum... Ég vinn 9 tíma á dag og er í fótbolta ca. 2 tíma á dag... Ég nenni sjaldan að eyða þessum fáu tímum sem ég á eftir til að blogga, sérstaklega þegar ég hef ekkert að segja! Þannig að þið sem hafið verið að gagnrýna mig, hér hafiði ástæðuna ☺

Fótboltinn hefur ekki gengið nógu vel, við unnum reyndar Snæfell 1-8 á Stykkishólmi, þar sem mér tókst auðvitað ekki að skora, það ætlar ekki að takast! Átti reyndar skot í slá, en það er ekki nóg....
Við spiluðum síðan í gær á móti Kára, rassapoturunum frá Akranesi... Það fór ekki vel.. Ég vil ekki tala mikið um þennan leik en í fáum orðum:
Þeir skoruðu rangstöðumark, Haukur stangaði hann inn, ég lagði upp mark og fékk á mig víti á síðustu mínútum leiksins sem var skorað úr og fór það alveg með mig! Leikurinn endaði 2-2....

Eftir leikinn á Stykkishólmi fór ég í afmæli hjá Frigga Lax útá Hafragili og var það frááábær skemmtun, pottur, úrbeinað lambakjöt og góður félagsskapur! Afmælið endaði svo á balli með stuðmönnum og einkenndist það af miklu djammi, Dabba Rú og endalausum hlátri.. Það var snilld! Ég smellti nokkrum myndum og getiði nálgast megnið af þeim hér uppi undir tenglinum: Myndir
Á Sunnudaginn skrapp ég á Hofsós að hitta Signýju, sem var einsog alltaf frábært. Við skruppum svo á hestbak hjá Guðrúnu Sonju og var það aaalgjör snilld, langt síðan ég hef setið hest. Takk fyrir það Guðrún
Glottandi

Já, annars hefur þetta bara verið nokkuð hefðbundið hjá mér.. Vinna og fótboltinn aðalefnið! Ég enda þetta blogg með smá sýnishorni af myndunum
Hlæjandi Vil ég þakka Ingva, Rúnari og Konna fyrir að vera aðalfyrirsætur helgarinnar og einnig frændunum fyrir að koma með Dabba Rú fyrir framan myndavélina það var snilld !








Jónsmessuhátíđ tekin međ stćl!

26. júní 2006 klukkan 02:58
Jájá, ég reyni að skrifa eitthvað núna en ég er óviss hvort ég hafi eitthvað merkilegt að segja.... Þar sem ég er í vinnu 9 tíma á dag (ekki svona einsog Guðrún Eik þvi ég hef ekki tíma til að blogga í vinnunniHlæjandi) og fótbolta 2 tíma þá er ekkert alltof mikill tími fyrir blogg en ég reyni að gera þetta svona stundum og stunum..

Ég er búinn að vera meiddur núna í tæplega þrjár vikur og hefur það verið ööömurlegt, aðeins einn ljós punktur við það, hann er sá að ég gat horft á fleiri HM leiki en ég hefði getað.. Samt er þetta öömurlegt!
Ekki hefur liðinu gengið nógu vel í síðustu leikjum, tap fyrir Óla Adda og félögum í Borganesi var hrein hörmung og hefði ég viljað sjá fleiri mörk á móti Neista... Vonandi bara að við skorum meira á þriðjudaginn kemur..
Fyrsta æfingin mín að einhverri alvöru var í dag, og það var svo ótrúlega æðislegt að geta spilað aftur, ég elska knattspyrnu
Hlæjandi

Núna um helgina var Jónsmessuhátíð á Hofsósi og var það þrusudjamm og hörkustuð.. Reyndar var óþægilegt að vita af því að ég þurfti að fara dæma á Sauðárkróki kl. 11 á Sunnudagsmorguninn og því var ég ekki eins lengi úti einsog ég hefði viljað... Á Jónsmessuhátíðinni fékk maður að upplifa margt, ég fékk ofboðslega góða kjötsúpu, keppti í fótbolta (sem var snilld, því éghafði ekki æft svo lengi), fékk grill í blíðskaparveðri og síðast en ekki síst ball! Ég eyddi helginni að mestu með Signýju og hennar fjölskyldu og var það bara megasweet! Gisti í hjólhýsi, reyndar var ég vakinn helvíti oft og ekki alltaf við mikinn fögnuð en svona er þetta á “útihátíðum”.

Ég tók þónokkuð af myndum og hendi ég þeim hérna inná myndasíðuna, vil ég þakka Berta fyrir að hafa verið gott módel!

Ég kveð af sinni og vonandi eruð þið sátt við að ég hafi bloggað...

Spurning dagsins: Var Ingvi Guðmundsson virkilega á msn??
Ég trúi því nú varla.

HM er byrjađ... Woooohooo

13. júní 2006 klukkan 00:01
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu ber efst á baugi og núna sit ég fyrir framan kassann og leikur Gana og Ítala fer rétt að byrja.

Ég er sjálfur Ítalskur stuðningsmaður, og hef verið það frá 1994 og var ég ekki sáttur þegar Baggio, minn maður á þeim tíma, klúðraði vítinu og tryggði Brössum bikarinn.. leiðinlegt það! En mín lið á þessu móti eru England og Ítalía, Svíar eru svo nánast í þessum hóp, en ekki eins ofarlega og hin tvö... Brassarnir eru alltaf skemmtilegir og getur maður ekki annað en haldið pínu með þeim, en þó ekki á móti þessum liðum sem ég nefndi hér fyrr...
Vonandi vinnur Ítalía allavega þennan leik, og helst alla!


Nýliðin helgi var ekkert annað en stórkostlegt.. Veðrið hefði mátt vera betra, en það sakaði ekki! Á föstudaginn var ég með Ingva og Frigga og kíktum við aðeins í veiði (ekkert fékkst) en annars bara rólegheit og frekar snemma farið í háttinn.. Laugardagurinn var snilld! Ég, Friggi og Raggi lögðum í leiðangur eftir vinnu, og tilgangurinn með honum var að finna gjöf handa Signýju Ósk, þar sem hún hélt veislu seinna um kvöldið..
Við fundum þennan æðislega ramma sem m.a. stóð á: 2cute4u... og tókum við mynd af okkur og settum í rammann! (takk berti fyrir að hafa rétt okkur hjálparhönd).. Stelpurnar gáfu henni svo nett skemmtilega gjöf sem kannski aðeins glittir í á myndum sem ég hendi hérna inn
Saklaus

Ég sótti svo Signýju (mína) í Varmahlíð því hún ætlaði að vera hjá mér Laugardag/Sunnudag og eldaði mér svo einsog sönnum kokki sæmir, þó ekki hafi verið nein veisla... Ég og Signý röltum svo til friggalax sem vantaði “djellið” fyrir “herdúið”, hann greiddi sér og við lögðum af stað til Signýjar Ósk.. Signý (mín) fór svo til Svölu frænku sinnar og ég og Friggi til Signýjar Ósk og var kvöldið gott og mikið hlegið af gömlum tímum.. Kringum miðnætti fóru svo flestir á ball, ég fór nú bara heim með Signýju (minni)

Sunnudagurinn einkenndist af leti og rigningu! Svaf framað hádegi og horfði á HM með Signýju og fórum við svo á Tindastól - Snæfell sem endaði 11 - 1 í hellidembu.. Þetta var rosalegur leikur og hef ég ekki séð annað eins, lesið um leikinn hér: http://www.skagafjordur.com/tindastoll/index.php?pid=653&cid=6382


Eftir leik var svo nemófundur þar sem ýmis málefni voru rædd og endaði svo kvöldið með afbragðsafmælisgrillveislu hjá Ingva Hrannari, takk fyrir það Ingvi

Leikurinn ernú að byrja svo ég hætti að sinni, hvet alla til að skoða myndirnar sem ég fer að henda inn innan skamms!

úúúbaby.. Raggi er inlove with Narnia i think!

08. júní 2006 klukkan 03:58
Ekki hef ég verið duglegur, onei... En þegar ég bjó til þessa bloggsíðu bjóst ég ekkert við að vera neitt rosa aktívur, aðeins láta vita að ég sé á lífi og reyna skrifa eitthvað smá!

En hvað er samt málið með blogg, blogg eru fáránlegt fyrirbæri? Fólk að reyna koma heimskulegustu hlutum á framfæri sem aldrei kæmu uppá yfirborðið öðruvísi en í bloggum... Pælingar sem enginn hefur pælt í, umræður um asnalega hluti, leikir sem annars væru bara leiknir í rútum á ferðalögum eða eitthvað svoleiðis.. Fáránlegt en satt þá er bloggmenningin að tröllríða internetinu um þessar mundir og er maður nánst hættur að “vafra” um netið einsog þegar það var “nýtt og spennandi”.. Nú skoðar maður í staðinn blogg, og hvað einstaklingar hafa gert síðustu daga/vikur... Yfirleitt er manni nokk sama um það en samt les maður alltaf og maður hættir ekki, jafnvel oftar en einu sinni? Svo eru sumir komnir útí það að skoða blogg hjá manneskjum sem þau þekkja ekki rassgat? Er það fáránlegt eða er það bara eitthvað sem fólk gerir til að gera ekki neitt? Spurning...

Ég hef ekki verið mikið með pælingar á mínu bloggi svo mig langaði að prófa þettta... því yfirleitt finnst mér blogg fáránlegt fyrirbæri, ég ætlaði mér aldrei að gera blogg en í prófum nennir maður ekki að læra allan daginn, svo til varð palmithor.bloggar.is! Mér hefur alltaf fundist kjánalegt að lesa öll þessi blogg og já, hjá manneskjum sem maður kannski rétt kannast við.. :/

En já, síðustu dagar hafa verið frábærir hjá mér og er ég ótrúlega sáttur við allt þessa dagana! Við reyndar töpuðum 6 - 1 fyrir Þór en það er saga sem ég ætla ekki útí...
Signý kom hingað síðustu helgi og var hjá mér á laugardaginn og á sunnudaginn var ég herramaður og grillaði þessa dýrindissvínasteik og ekki var hún ósátt með mig stelpan ;)
Í gær spiluðum við á móti Hvöt og gerðum við okkur lítið fyrir og unnum þann leik 2 - 0... Við skoruðum bæði mörkin okkar í fyrri hálfleik og vorum við með völdin á vellinum! Sá seinni var ekki einsgóður en við héldum hreinu og það var takmarkið!

Litlu pjakkarnir, Íris og Valgeir voru hérna síðustu daga og tóku þau tvær aðrar með sér.. Höllu vinkonu Írisar og Nótt, sem er krúttlegt lítið kvikindi (þ.e.a.s hundkvikindi)... Það var æðislegt að hafa þau hérna og ótrúlega gaman að sjá þau aftur ☺


Nótt, æðislega kvikindið!

Núna sitjum við Raggi og horfum á Narnia, þar sem hann hefur ekki þorað að leigja han varð ég að bjóða honum hingað og leyfa honum að horfa á þessa fínu mynd!

Leikur um helgina og hvet ég alla til að koma að horfa, Snæfell koma hingað á sunnudaginn og viljum við allan mögulegan stuðning!

En það er nóg í bili, ég kveð að sinni...

Spurning dagsins: Eru blogg yfirleitt þess virði að lesa þau, var þetta blogg þess virði?
Lag dagsins: Belle and Sebastian - The Blues Are Still Blue


Tap fyrir brjálćđingum?

30. maí 2006 klukkan 02:00
Ég sit hérna í rúminu mínu... Bloggandi í annað sinn þar sem ég gleymdi að afrita bloggið áður en ég ýtti á vista, og ég hafði víst verið svo lengi að þetta datt allt út! Vá ég er pirraður núna, bloggið áðan endaði meira að segja svona:

Núna eftir þetta blogg, er ég spakari og sáttari en þegar ég byrjaði það!

Þessi setning verður vonandi ennþá í gildi á eftir, því annars verð ég megapissed og þrykki kannski makkanum í vegginn... Og þá myndi ég, segir Konni, ekki spila meira í sumar með meistarflokki vegna þunglyndis, ég verði svo sár að ég geti ekki spilað næsta leik... ekkert meira í sumar, svo vænt þykir mér um makkann...
Eru fleiri sammála Konna?


Bloggið sem ég skrifaði áðan innihélt rosalega pælingu, sem var mjög sérstök en ég er ekki ennþá í stuði til að skrifa eins mikið og áðan.. það var reyndar ofboðslega mikið þannig að það er erfitt að toppa það!

Aðalumræðu efnið í blogginu, var einsog svo oft, knattspyrna.. Mitt aðaláhugamál og mín helsta skemmtun...

En fyrst að helginni... Hún byrjaði með eindæmum vel og vann maður einsog venjulega, frá 8 - 18... Hitti ég svo Signýju um kvöldið en hún var mætt í bæinn í tilefni af fermingum!
Laugardagurinn var frááábær... Stutt en góð lýsing er: Vinna, lítið að gera fyrir utan óþolandi konuna sem var ekki farin úr búðinni fyrr en 25 mín yfir 1 og við lokum kl. 1? en þá að því góða: Friggi og Raggi pikkaðir upp, Sund, 400m, Signý bætist í hópinn, bakarí, ábær, ís... og til að toppa allt var fine sunshine þennan dag.. æðislegur dagur! hitti svo Signýju umkvöldið og gat maður ekki annað en að líta aðeins á kosningasjónvarpið... Sama hversu ótrúlega leiðinlegt þetta er, verður maður að horfa aðeins, ótrúlegt en satt!

En þá að leiðinlegum endi á þessari annars frábæru helgi, Við í Tindastóli vorum að spila á móti Kára... Eftir að hafa verið mettíma á leiðinni á Akranes (þá meina ég met í löngum tíma, takk Dalmann) þá vorum við mættir á akranes...

Ég vil ekki tala mikið um þann leik því þá verð ég svo reiður... Mér hefur aldrei þótt eins leiðinlegt að spila fótbolta!
Leikmenn Kára eru brjálæðingar og dómarinn gat ekki haldið leiknum gangandi einsog eðlilegum fótboltaleik og aðstoðardómarinn, eða björgunarhringurinn einsog heyrðist sagt um hann (því hann var svo ofboðslega feitur og asnalegur) var algjört fífl... Hann kunni ekki einu sinni sitt starf, flaggaði rangstöðu og labbaði með flaggið þegar hann var að reyna ná athygli dómarans, í staðinn fyrir að veifa flagginu og standa kyrr....
En ég vil fá álit lesenda á eftirfarandi punktum sem eru allir um leikmenn Kára:
  • Er eðlilegt að gera eftirfarandi í knattspyrnuleik?
    • Klípa í punginn á mótherja?
    • Hrinda?
    • Klípa til blóðs?
    • Fara í fáránlegar tæklingar?
    • og síðast en ekki síst, Reyna að stinga puttum uppí rassgatið á mótherja????
Allt þetta tókst einum leikmanni í þessu "frábæra" Kára liði að gera... Algjört fífl og er ég viss um að hann fái ekki blíðar móttökur á Sauðárkróki, og allt þetta lið var fáránlegt! Siggi Donna mætti skammast sín fyrir að leyfa sínum mönnum að spila svona! Mér hefur aldrei fundist eins leiðinlegt að spila fótboltaleik... þetta var ömurlegt!
Og til að toppa allt er ég meiddur, einsog margir aðrir í liðinu, en ég fékk skemmtilega kúlu á ristina... Reyndar er það eina sem ég gat kennt mér sjálfum um, en ég sparkaði undir skrúfutakkaskósóla hjá einum þeirra!

(sjá grein um leikinn: www.skagafjordur.com/tindastoll)

Einsog ég sagði áður skrifaði ég pælingu í síðasta blogg sem var mjög spes.. Hún verður að bíða betri tíma!


Ég hef ekki staðið mig í myndatöku og lofa ég að ég mun reyna að gera betur! Kannski maður taki bara vélina með í vinnuna og sýni fólki lífið á eyrinni, sem er btw snilldarstaður til að vinna á, hvet ég alla til að kíkja á okkur og fá sér kaffibolla eða skoða ótrúlegt úrval af skrúfum og alls kyns drasli!


Ég kveð að sinni og vona ég að ég fái nóg af skoðunum og það myndist umræða um leikinn og fleira...

Spurning dagsins: Vill fólk fá að sjá myndasyrpu frá Eyrinni?
Lag dagsins: Gnarls Barkley - Go-Go Gadget Gospel

Latur bloggari reynir fyrir sér!

22. maí 2006 klukkan 04:16
Já, ég er mættur enn og aftur... Ég hef aftur heyrt að ég sé lélegur bloggari en svona er þetta, maður hefur annað að gera þessa dagana en að vera vesenast í tölvunni og blogga sem er bara vesen...
En ég er samt ekki svo slappur að hætta bara, ég mun halda áfram og reyna standa eitthvað aðeins undir væntingum!

Allt er að ganga upp þessa dagana og er ég mjög sáttur einstaklingur...Hlæjandi
  • Við kepptum á móti Völsung, sem eru deild ofar en við, í bikarnum á fimmtudaginn og gerðum okkur lítið fyrir og unnum 3 - 0, sem var snilld
    • Gísli markmaður komst í sögubækurnar og setti tvö, Ebbe Nygaard skoraði þriðja markið.
  • Vinnan er byrjuð að krafti og er heldur betur mikið að gera á Eyrinni síðustu daga og er ég nokkuð sáttur..!
  • Ragnar Freyr Guðmundsson, Sonurinn, hélt í gærkvöldi afmælisteiti í tilefni af 21. árs afmælinu hans sem var 3. maí og gekk það svona frábærlega og vil ég þakka Ragnari fyrir góða skemmtun
  • Björn Magnús stóð sig vel á gítarnum og á hrós skilið.
  • Afmælið einkenndist af Eurovision lögum, jafnt góðum sem og ekki eins góðum..
    • Frábær lög einsog, Minn hinnsti dans, gleðibankinn og fleiri fengu að óma oftar en einu sinni... algjört gull!
    • Ingvi missti sig í gleðinni og hef ég sjaldan heyrt eins mikinn og góðan flutning á þessum rosalegu lögum, allavegana ekki eins mikla líkamstjáningu Hlæjandi
Ég vil afsaka að ég er ekki með myndir frá partýinu, en myndavélin mín var víst batterílaus þegar ég ætlaði að fara smella af Fýldur

Þetta eru svona síðustu dagar í hnotskurn og nenni ég ekki að koma með einhvern svaka fróðleik núna... Hef ekki staðið mig nógu vel í sniðugum bloggum en ég reyni!

Leikur á þriðjudaginn á móti Neista FC. og hlakka ég mikið til! Reyndar kvíði ég pínu líka því það er spáð sliddu og einsog staðan er núna er byrjað að festa snjó á jörðinni :/

En ég kveð að sinni því það er rosalegur leikur í sjónvarpinu... LeBron og félagar í Cleveland á móti Detroit tröllunum, ég vona innilega að Cleveland taki þetta!


En nóg í dag... kveð að sinni


Frábćr helgi!

15. maí 2006 klukkan 04:39
Daginn, daginn... Kvöldið, kvöldið Brosandi

Drengurinn er hress og mjög svo kátur.. Það hefur nokkuð drifið á daga mína núna uppá síðkastið!

Í stuttu máli fyrir þá sem ekki nenna að lesa hversdagslegt leiðindablogg:
Ég kláraði prófin og er ég ótrúlega ánægður með þann áfanga, m.fl. Tindastóls spilaði fyrsta alvöru leik sumarsins sem fór vel, ég eyddi helginni á akureyri..

Síðustu dagar hafa verið frábærir! Ég kláraði prófin og ég held ég hafi bara staðið mig með sóma.. Átti ekki mikla orku eftir í mínu heilabúi, hefði mátt læra betur fyrir efnafræði en prófið fór einsog ég bjóst við: Klúðraði skilgreiningunumn en rústaði reikningnum
Saklaus

Tercelinn hinn magnaði fór svo með mig alla leiðina á Akureyri eftir vinnu á föstudaginn og lögðum við í boganum.. Þar áttum við leik við Dalvík/Reyni og hefur Tindastóll held ég ekki spilað eins góðan leik síðan ég byrjaði að spila með M.fl. Leikurinn endaði 1 - 6 fyrir okkur og stóðu sig allir frábærlega. Það var mikil barátta í mönnum og börðust allir fyrir liðið. Danirnir stóðu sig ótrúlega vel, betur en við mátti búast og skoraði Thomas Bang þrjú mörk sem er bara snilld! Meira er hægt að lesa um leikinn á www.skagafjordur.com/tindastoll ..

Ég varð svo eftir á Akureyri og fékk ég að búa heima hjá Signýju og var helgin mjög nice.. Ég dreif mig í bíó (MI:III), horfði á gott sjónvarpsefni og átti rólega góða helgi Brosandi

Þannig er líf mitt búið að vera...

Ég vill láta fólk vita af því að ég skal reyna blogga meira, en ég hef fengið slæm viðbrögð frá Guðmundssyni Ingva og oftar en ekki heyrt þessa setningu: ,,Gaur, þú ert lélegur nýr bloggari"

Ég vil minna á leikinn á fimmtudaginn, Tindastóll - Völsungur á Sauðárkróksvelli en þetta er önnur umferð bikarsins!

Ég kveð að sinni með nokkrum myndum sem pabbi tók á leiknum (hægt er að sjá fleir hér):




Prófíll

  • Nafn: Pálmi Ţór Valgeirsson
  • Netfang: palmi88@simnet.is/palmi88@hotmail.com
  • Stađur: Sauđárkrókur / Slagelse
  • Símanúmer: 8935632
  • Atvinna: Nemi/Ráđgjafi hjá Skýrr
  • Hjúskaparstađa: Makalaus alveg hreint!
  • Um mig: Samviskusamur, lítill orkubolti í eins stuttu máli og hćgt er :)
  • Annađ: Elska knattspyrnu og spila međ Tindastóli, mjög félagslyndur og gegndi starfi forseta Nemendafélags FNV. Er í Danmörku í íţróttalýđháskóla og mun vonandi fara í MA eftir áramót, can't wait!