Leit

Auglýsing

Ég ađ blogga í vinnunni? Stórt tilefni!

01. ágúst 2006 klukkan 18:17
Friggi var tekinn í bóndabeygju... Hér fáiði að sjá það!
Friggi var tekinn í bóndabeygju

Viltu fá myndina stærri? Stærri?

Eyland er ađ verđa 33. ára!

30. júlí 2006 klukkan 10:46
Vá, akkúrat núna er ég glaður einstaklingur!

Ég var að koma af skemmtilegasta djammi sumarsins og er ég ótrúlega sáttur við það  :D  Án efa góóóð upphitun fyrir verslunarmannahelgina, eða næstu helgi! Sem verður vonandi twiceasnice Hlæjandi


Einsog fyrirsögnin segir hálfpartinn var ég í afmæli hjá Gísla Eyland Sveinssyni, Svampi Sveinssyni eða Tekatlinum.... Kallinn hélt uppá 30, 31, 32 og 33 ára afmælið sitt og var það ánefa ótrúlega vel heppnað! Nóg af drykkjum var á svæðinu og einnig gerði Ingunn hans ótrúlega ljúffengan kjúklingarétt sem fór vel í alla. Afmælið var haldið í bílskúrnum hans sem hann hafði "innréttað" sem þýskan bar og var stemmningin rosaleg og allir ótrúlega sprækir! Sveinbjörn Jón fór þar sem stóóóóra rullu Saklaus

Ég tók myndavélina mína auðvitað með og tók heilan helling af myndum, því miður er hún í aftursætinu hjá Laxmanninum þannig að myndirnar koma inn seinna, og vo tok ég helling af video'um en þau verða að bíða þangað til á árshátíðinni í lok tímabils.

Ég eyddi miklum tíma í kvöld með Portúgalanum og viti menn, kauði lærði allsvakalega að skemmta sér í portúgal.. Snilld að vera með kjellinum! Eftir partýið fórum við niður í bæ og chilluðum aðeins milli kaffkróks og ólafshúss en síðan lá leiðin á góðan rúnt með frigga! Bílinn fermdu ég, friggi auðvitað, portúgalinn, bulk og elsajóns, snilldar mannskapur og snilldar rúntur! Var komið við á eyrinni til að ná í dót fyrir frigga og margt fleira gott stöff, einsog t.d. að éta köku Hlæjandi

Síðustu mínútur kvöldsins voru svo hjá henni röggusilju og var það bara róleg og góð stemmning, hinsvegar fór haukur stundum of langt með skemmtilegu óþægilegu orðalagi og fleiru.... Við förum ekkert meira útí þá sálma!

Svo röltum við sólborg bara saman heim og er ég kominn hingað í tölvuherbergið þar sem mér var hent útúr mínu vegna gesta...

En allavega er ég ótrúlega sáttur með kvöldið og vona ég innilega að næsta helgi verði twiceasnice Hlæjandi

Kveð að sinni... Myndir væntanlegar! GóðanóttGlottandi

Sumarliđi er fullur!

20. júlí 2006 klukkan 05:22
Já, Pálmi Þór er vakandi, ótrúlegt en satt.. Aðalástæðan fyrir því er samt að mig langar að heyra úrslitin úr Rocstar:Supernova
Þessi þáttur er helvíti mikið fíkniefni, maður vill sjá úrslitin og tel ég aðalástæðuna vera Magna. Hann er að meikaða feitast drengurinn og finnst mér það bara snilld! Nú ætla ég að segja litla sögu um afrek mín á balli hjá Magna.. Þar eru tvö skondin atvik sem standa uppúr:

Það fyrra:
Ég er staddur á Ísafirði um Verslunarmannahelgi, ástæðan fyrir því að ég var á þessum fjarlæga stað um Versló var einmitt unglingalandsmót. Um Verslunarmannahelgar er alltaf selt allskonar drasl sem yfirleitt annars væri ekki selt, einsog glóandi hálsfestar, dót sem blikkar og hvaðeina.
Magni og hljómsveitin hans, Á móti sól tróðu upp á laugardagskvöldið að mig minnir og var þrusustemming, allir litlu krakkarnir edrú og að skemmta sér konunglega. En stíg ég þá ekki einhvern hlut, ég ath. hvað þetta er og þá kemur í ljós að þetta er eitt af þessu blikkandi drasli, blikkandi snuð sem hafði farið undir skóna hjá allskyns fólki tel ég, því það var brotið. Ég tek það upp, kveiki á ljósinu í því og þrykki því uppá svið
Brosandi Haldiði ekki að Magni, þessi heimsfrægi maður, taki það upp... Það líður ekki að löngu þangað til að maðurinn stingur því uppí sig við mikinn fögnuð minn, ég ætlaði ekki að hætta að hlæja, þetta var ofboðslega fyndið

Það seinna:
Ég er staddur í Miðgarði, þeim frábæra stað á balli með Á móti sól. Mikið af fólki er á ballinu og allir að djamma og tjútta á fullu og auðvitað var ég einn af þeim. Árni bróðir hafði einmitt verið nýkominn frá USA og keypt þetta fína Fossil úr handa mér, með ól sem hægt var að skipta um (úrið fest á ólina með smellum). Ég er þarna í góðum fíling en tek allt í einu eftir því að úrið er horfið af ólinni. Ég panika og leita um öll gólf en enginn er árangurinn... Þannig að ég ætlaði að þykjast klár og reyna að ná í tærnar á Magna og biðja hann um að auglýsa úrið, ég teygji mig og teygji og rétt næ að strjúka skónna hans en næ engu sambandi við hann, ekki nema það að hann brosir til mín einsog ég sé einhver algjör grúppía.. mér leið ekki vel
Fýldur

Já, ég og Magni eigum fortíð og ætla ég að publisha fyrri söguna útum allan heim ef hann kemst alla leið í þessum þætti...

Fólk er að tala um að ég sé ekki nógu duglegur bloggari og því ætla ég að svara þessum gagnrýnisröddum... Ég vinn 9 tíma á dag og er í fótbolta ca. 2 tíma á dag... Ég nenni sjaldan að eyða þessum fáu tímum sem ég á eftir til að blogga, sérstaklega þegar ég hef ekkert að segja! Þannig að þið sem hafið verið að gagnrýna mig, hér hafiði ástæðuna ☺

Fótboltinn hefur ekki gengið nógu vel, við unnum reyndar Snæfell 1-8 á Stykkishólmi, þar sem mér tókst auðvitað ekki að skora, það ætlar ekki að takast! Átti reyndar skot í slá, en það er ekki nóg....
Við spiluðum síðan í gær á móti Kára, rassapoturunum frá Akranesi... Það fór ekki vel.. Ég vil ekki tala mikið um þennan leik en í fáum orðum:
Þeir skoruðu rangstöðumark, Haukur stangaði hann inn, ég lagði upp mark og fékk á mig víti á síðustu mínútum leiksins sem var skorað úr og fór það alveg með mig! Leikurinn endaði 2-2....

Eftir leikinn á Stykkishólmi fór ég í afmæli hjá Frigga Lax útá Hafragili og var það frááábær skemmtun, pottur, úrbeinað lambakjöt og góður félagsskapur! Afmælið endaði svo á balli með stuðmönnum og einkenndist það af miklu djammi, Dabba Rú og endalausum hlátri.. Það var snilld! Ég smellti nokkrum myndum og getiði nálgast megnið af þeim hér uppi undir tenglinum: Myndir
Á Sunnudaginn skrapp ég á Hofsós að hitta Signýju, sem var einsog alltaf frábært. Við skruppum svo á hestbak hjá Guðrúnu Sonju og var það aaalgjör snilld, langt síðan ég hef setið hest. Takk fyrir það Guðrún
Glottandi

Já, annars hefur þetta bara verið nokkuð hefðbundið hjá mér.. Vinna og fótboltinn aðalefnið! Ég enda þetta blogg með smá sýnishorni af myndunum
Hlæjandi Vil ég þakka Ingva, Rúnari og Konna fyrir að vera aðalfyrirsætur helgarinnar og einnig frændunum fyrir að koma með Dabba Rú fyrir framan myndavélina það var snilld !








24 skođanir, laglegt!

12. júlí 2006 klukkan 02:39
Já, Pálmi hinn ótrúlega magnaði bloggari (samkvæmt áreiðanlegum heimildum Ingva Gé) er mættur aftur... Eftir langan tíma reyndar!
Ástæðan fyrir því að ég hef ekkert bloggað er einföld... Ég hef ekkert merkilegt að segja frá, ég nenni valla að þrasa um á hverjum degi og segja: Í dag fór ég í vinnuna, á æfingu og svo heim að horfa á sjónvarpið! Sem er búin að vera minn dagur í nokkurn tíma núna...

Ég er byrjaður aftur í fótboltanum eftir löng meiðsl og kominn á fullt og er ég ótrúlega sáttur við það. Leikur næstu helgi á Stykkishólmi er sá leikur skyldusigur!

Laxinn átti afmæli þann 7. Júlí síðastliðinn og systir mín, Guðrún Jóna daginn þar á undan og vil ég bara óska þeim kærlega til hamingju með afmælið.

Svo er ég auðvitað 18. ára á morgun og óska ég eftir helling af gjöfum Glottandi
Ekki held ég upp á afmælið þetta árið, ekki nema bara smá veislu í vinnunni á morgun, þið eruð velkomin eftir hádegi um 4 leitið ef þið eigið leið framhjá Brosandi

Já, dagarnir síðustu hafa flestir verið eins: Vinna, æfing, heim í tölvu/horfa á sjónvarp.. Ég vann reyndar ekki síðasta laugardag því þá þurftum ég og Ingvi, einnig þekktir sem The Hillbillies að fara til Reykjavíkur.. Eina sem var fyrirfram ákveðið var fundur sem ég var boðaður á hjá HÍF (Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema) Fólkið á fundinum var jafn mismunandi og þau voru mörg og var ekki alltaf 100% samstaða í hópnum.. Ritari fundarins var t.d. ekki alveg eins góður á Microsoft Word og hann hélt og fokkaði öllu upp og var fólk farið að tala um að reka hann af fundinum Hlæjandi En hann hélt sæti sínu í þessa rúmelga 3 tíma sem fundurinn var og er ég víst kominn í stjórn þesa félags Óákveðinn
Annars fórum við Gé bara í búðir, bíó (ég svaf reyndar bara), afmæli til systur minnar og svo bara rúntur og skemmtilegheit.
Á leiðinni heim komum við við hjá Guðrúnu Eik á Tannstaðabakka, þar fengum við dýrindis piparpúkaköku ásamt gosi og snakki og horfðum við á Ítalíu vinna Frakka í þrusuleik og var ég einni Ítalski stuðningsmaðurinn á svæðinu og var ég glaður :D  Ég ætla ekki að rökræða eitthvað um Zidane því þetta var bara ömurlegt í alla staði!

Vonandi er fólk ánægt að ég hafi bloggað... Næsta blogg verður væntanlega einhven tíman eftir helgi því ég ætla að taka myndavélina með mér á ball á Blönduósi næstu helgi.... Stuðmenn og Birgitta Haukdal Ullandi


Kveð að sinni...

Og vil ég minna alla á að lesa æðislega færslu um mig og mína ævi á:
http://www.blog.central.is/menace?page=comments&id=2059145

Þarna er talað um mig og mín helstu bernskubrek í tilefni af átján ára afmælinu mínu
Hlæjandi

Jónsmessuhátíđ tekin međ stćl!

26. júní 2006 klukkan 02:58
Jájá, ég reyni að skrifa eitthvað núna en ég er óviss hvort ég hafi eitthvað merkilegt að segja.... Þar sem ég er í vinnu 9 tíma á dag (ekki svona einsog Guðrún Eik þvi ég hef ekki tíma til að blogga í vinnunniHlæjandi) og fótbolta 2 tíma þá er ekkert alltof mikill tími fyrir blogg en ég reyni að gera þetta svona stundum og stunum..

Ég er búinn að vera meiddur núna í tæplega þrjár vikur og hefur það verið ööömurlegt, aðeins einn ljós punktur við það, hann er sá að ég gat horft á fleiri HM leiki en ég hefði getað.. Samt er þetta öömurlegt!
Ekki hefur liðinu gengið nógu vel í síðustu leikjum, tap fyrir Óla Adda og félögum í Borganesi var hrein hörmung og hefði ég viljað sjá fleiri mörk á móti Neista... Vonandi bara að við skorum meira á þriðjudaginn kemur..
Fyrsta æfingin mín að einhverri alvöru var í dag, og það var svo ótrúlega æðislegt að geta spilað aftur, ég elska knattspyrnu
Hlæjandi

Núna um helgina var Jónsmessuhátíð á Hofsósi og var það þrusudjamm og hörkustuð.. Reyndar var óþægilegt að vita af því að ég þurfti að fara dæma á Sauðárkróki kl. 11 á Sunnudagsmorguninn og því var ég ekki eins lengi úti einsog ég hefði viljað... Á Jónsmessuhátíðinni fékk maður að upplifa margt, ég fékk ofboðslega góða kjötsúpu, keppti í fótbolta (sem var snilld, því éghafði ekki æft svo lengi), fékk grill í blíðskaparveðri og síðast en ekki síst ball! Ég eyddi helginni að mestu með Signýju og hennar fjölskyldu og var það bara megasweet! Gisti í hjólhýsi, reyndar var ég vakinn helvíti oft og ekki alltaf við mikinn fögnuð en svona er þetta á “útihátíðum”.

Ég tók þónokkuð af myndum og hendi ég þeim hérna inná myndasíðuna, vil ég þakka Berta fyrir að hafa verið gott módel!

Ég kveð af sinni og vonandi eruð þið sátt við að ég hafi bloggað...

Spurning dagsins: Var Ingvi Guðmundsson virkilega á msn??
Ég trúi því nú varla.

HM er byrjađ... Woooohooo

13. júní 2006 klukkan 00:01
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu ber efst á baugi og núna sit ég fyrir framan kassann og leikur Gana og Ítala fer rétt að byrja.

Ég er sjálfur Ítalskur stuðningsmaður, og hef verið það frá 1994 og var ég ekki sáttur þegar Baggio, minn maður á þeim tíma, klúðraði vítinu og tryggði Brössum bikarinn.. leiðinlegt það! En mín lið á þessu móti eru England og Ítalía, Svíar eru svo nánast í þessum hóp, en ekki eins ofarlega og hin tvö... Brassarnir eru alltaf skemmtilegir og getur maður ekki annað en haldið pínu með þeim, en þó ekki á móti þessum liðum sem ég nefndi hér fyrr...
Vonandi vinnur Ítalía allavega þennan leik, og helst alla!


Nýliðin helgi var ekkert annað en stórkostlegt.. Veðrið hefði mátt vera betra, en það sakaði ekki! Á föstudaginn var ég með Ingva og Frigga og kíktum við aðeins í veiði (ekkert fékkst) en annars bara rólegheit og frekar snemma farið í háttinn.. Laugardagurinn var snilld! Ég, Friggi og Raggi lögðum í leiðangur eftir vinnu, og tilgangurinn með honum var að finna gjöf handa Signýju Ósk, þar sem hún hélt veislu seinna um kvöldið..
Við fundum þennan æðislega ramma sem m.a. stóð á: 2cute4u... og tókum við mynd af okkur og settum í rammann! (takk berti fyrir að hafa rétt okkur hjálparhönd).. Stelpurnar gáfu henni svo nett skemmtilega gjöf sem kannski aðeins glittir í á myndum sem ég hendi hérna inn
Saklaus

Ég sótti svo Signýju (mína) í Varmahlíð því hún ætlaði að vera hjá mér Laugardag/Sunnudag og eldaði mér svo einsog sönnum kokki sæmir, þó ekki hafi verið nein veisla... Ég og Signý röltum svo til friggalax sem vantaði “djellið” fyrir “herdúið”, hann greiddi sér og við lögðum af stað til Signýjar Ósk.. Signý (mín) fór svo til Svölu frænku sinnar og ég og Friggi til Signýjar Ósk og var kvöldið gott og mikið hlegið af gömlum tímum.. Kringum miðnætti fóru svo flestir á ball, ég fór nú bara heim með Signýju (minni)

Sunnudagurinn einkenndist af leti og rigningu! Svaf framað hádegi og horfði á HM með Signýju og fórum við svo á Tindastól - Snæfell sem endaði 11 - 1 í hellidembu.. Þetta var rosalegur leikur og hef ég ekki séð annað eins, lesið um leikinn hér: http://www.skagafjordur.com/tindastoll/index.php?pid=653&cid=6382


Eftir leik var svo nemófundur þar sem ýmis málefni voru rædd og endaði svo kvöldið með afbragðsafmælisgrillveislu hjá Ingva Hrannari, takk fyrir það Ingvi

Leikurinn ernú að byrja svo ég hætti að sinni, hvet alla til að skoða myndirnar sem ég fer að henda inn innan skamms!

úúúbaby.. Raggi er inlove with Narnia i think!

08. júní 2006 klukkan 03:58
Ekki hef ég verið duglegur, onei... En þegar ég bjó til þessa bloggsíðu bjóst ég ekkert við að vera neitt rosa aktívur, aðeins láta vita að ég sé á lífi og reyna skrifa eitthvað smá!

En hvað er samt málið með blogg, blogg eru fáránlegt fyrirbæri? Fólk að reyna koma heimskulegustu hlutum á framfæri sem aldrei kæmu uppá yfirborðið öðruvísi en í bloggum... Pælingar sem enginn hefur pælt í, umræður um asnalega hluti, leikir sem annars væru bara leiknir í rútum á ferðalögum eða eitthvað svoleiðis.. Fáránlegt en satt þá er bloggmenningin að tröllríða internetinu um þessar mundir og er maður nánst hættur að “vafra” um netið einsog þegar það var “nýtt og spennandi”.. Nú skoðar maður í staðinn blogg, og hvað einstaklingar hafa gert síðustu daga/vikur... Yfirleitt er manni nokk sama um það en samt les maður alltaf og maður hættir ekki, jafnvel oftar en einu sinni? Svo eru sumir komnir útí það að skoða blogg hjá manneskjum sem þau þekkja ekki rassgat? Er það fáránlegt eða er það bara eitthvað sem fólk gerir til að gera ekki neitt? Spurning...

Ég hef ekki verið mikið með pælingar á mínu bloggi svo mig langaði að prófa þettta... því yfirleitt finnst mér blogg fáránlegt fyrirbæri, ég ætlaði mér aldrei að gera blogg en í prófum nennir maður ekki að læra allan daginn, svo til varð palmithor.bloggar.is! Mér hefur alltaf fundist kjánalegt að lesa öll þessi blogg og já, hjá manneskjum sem maður kannski rétt kannast við.. :/

En já, síðustu dagar hafa verið frábærir hjá mér og er ég ótrúlega sáttur við allt þessa dagana! Við reyndar töpuðum 6 - 1 fyrir Þór en það er saga sem ég ætla ekki útí...
Signý kom hingað síðustu helgi og var hjá mér á laugardaginn og á sunnudaginn var ég herramaður og grillaði þessa dýrindissvínasteik og ekki var hún ósátt með mig stelpan ;)
Í gær spiluðum við á móti Hvöt og gerðum við okkur lítið fyrir og unnum þann leik 2 - 0... Við skoruðum bæði mörkin okkar í fyrri hálfleik og vorum við með völdin á vellinum! Sá seinni var ekki einsgóður en við héldum hreinu og það var takmarkið!

Litlu pjakkarnir, Íris og Valgeir voru hérna síðustu daga og tóku þau tvær aðrar með sér.. Höllu vinkonu Írisar og Nótt, sem er krúttlegt lítið kvikindi (þ.e.a.s hundkvikindi)... Það var æðislegt að hafa þau hérna og ótrúlega gaman að sjá þau aftur ☺


Nótt, æðislega kvikindið!

Núna sitjum við Raggi og horfum á Narnia, þar sem hann hefur ekki þorað að leigja han varð ég að bjóða honum hingað og leyfa honum að horfa á þessa fínu mynd!

Leikur um helgina og hvet ég alla til að koma að horfa, Snæfell koma hingað á sunnudaginn og viljum við allan mögulegan stuðning!

En það er nóg í bili, ég kveð að sinni...

Spurning dagsins: Eru blogg yfirleitt þess virði að lesa þau, var þetta blogg þess virði?
Lag dagsins: Belle and Sebastian - The Blues Are Still Blue


Tap fyrir brjálćđingum?

30. maí 2006 klukkan 02:00
Ég sit hérna í rúminu mínu... Bloggandi í annað sinn þar sem ég gleymdi að afrita bloggið áður en ég ýtti á vista, og ég hafði víst verið svo lengi að þetta datt allt út! Vá ég er pirraður núna, bloggið áðan endaði meira að segja svona:

Núna eftir þetta blogg, er ég spakari og sáttari en þegar ég byrjaði það!

Þessi setning verður vonandi ennþá í gildi á eftir, því annars verð ég megapissed og þrykki kannski makkanum í vegginn... Og þá myndi ég, segir Konni, ekki spila meira í sumar með meistarflokki vegna þunglyndis, ég verði svo sár að ég geti ekki spilað næsta leik... ekkert meira í sumar, svo vænt þykir mér um makkann...
Eru fleiri sammála Konna?


Bloggið sem ég skrifaði áðan innihélt rosalega pælingu, sem var mjög sérstök en ég er ekki ennþá í stuði til að skrifa eins mikið og áðan.. það var reyndar ofboðslega mikið þannig að það er erfitt að toppa það!

Aðalumræðu efnið í blogginu, var einsog svo oft, knattspyrna.. Mitt aðaláhugamál og mín helsta skemmtun...

En fyrst að helginni... Hún byrjaði með eindæmum vel og vann maður einsog venjulega, frá 8 - 18... Hitti ég svo Signýju um kvöldið en hún var mætt í bæinn í tilefni af fermingum!
Laugardagurinn var frááábær... Stutt en góð lýsing er: Vinna, lítið að gera fyrir utan óþolandi konuna sem var ekki farin úr búðinni fyrr en 25 mín yfir 1 og við lokum kl. 1? en þá að því góða: Friggi og Raggi pikkaðir upp, Sund, 400m, Signý bætist í hópinn, bakarí, ábær, ís... og til að toppa allt var fine sunshine þennan dag.. æðislegur dagur! hitti svo Signýju umkvöldið og gat maður ekki annað en að líta aðeins á kosningasjónvarpið... Sama hversu ótrúlega leiðinlegt þetta er, verður maður að horfa aðeins, ótrúlegt en satt!

En þá að leiðinlegum endi á þessari annars frábæru helgi, Við í Tindastóli vorum að spila á móti Kára... Eftir að hafa verið mettíma á leiðinni á Akranes (þá meina ég met í löngum tíma, takk Dalmann) þá vorum við mættir á akranes...

Ég vil ekki tala mikið um þann leik því þá verð ég svo reiður... Mér hefur aldrei þótt eins leiðinlegt að spila fótbolta!
Leikmenn Kára eru brjálæðingar og dómarinn gat ekki haldið leiknum gangandi einsog eðlilegum fótboltaleik og aðstoðardómarinn, eða björgunarhringurinn einsog heyrðist sagt um hann (því hann var svo ofboðslega feitur og asnalegur) var algjört fífl... Hann kunni ekki einu sinni sitt starf, flaggaði rangstöðu og labbaði með flaggið þegar hann var að reyna ná athygli dómarans, í staðinn fyrir að veifa flagginu og standa kyrr....
En ég vil fá álit lesenda á eftirfarandi punktum sem eru allir um leikmenn Kára:
  • Er eðlilegt að gera eftirfarandi í knattspyrnuleik?
    • Klípa í punginn á mótherja?
    • Hrinda?
    • Klípa til blóðs?
    • Fara í fáránlegar tæklingar?
    • og síðast en ekki síst, Reyna að stinga puttum uppí rassgatið á mótherja????
Allt þetta tókst einum leikmanni í þessu "frábæra" Kára liði að gera... Algjört fífl og er ég viss um að hann fái ekki blíðar móttökur á Sauðárkróki, og allt þetta lið var fáránlegt! Siggi Donna mætti skammast sín fyrir að leyfa sínum mönnum að spila svona! Mér hefur aldrei fundist eins leiðinlegt að spila fótboltaleik... þetta var ömurlegt!
Og til að toppa allt er ég meiddur, einsog margir aðrir í liðinu, en ég fékk skemmtilega kúlu á ristina... Reyndar er það eina sem ég gat kennt mér sjálfum um, en ég sparkaði undir skrúfutakkaskósóla hjá einum þeirra!

(sjá grein um leikinn: www.skagafjordur.com/tindastoll)

Einsog ég sagði áður skrifaði ég pælingu í síðasta blogg sem var mjög spes.. Hún verður að bíða betri tíma!


Ég hef ekki staðið mig í myndatöku og lofa ég að ég mun reyna að gera betur! Kannski maður taki bara vélina með í vinnuna og sýni fólki lífið á eyrinni, sem er btw snilldarstaður til að vinna á, hvet ég alla til að kíkja á okkur og fá sér kaffibolla eða skoða ótrúlegt úrval af skrúfum og alls kyns drasli!


Ég kveð að sinni og vona ég að ég fái nóg af skoðunum og það myndist umræða um leikinn og fleira...

Spurning dagsins: Vill fólk fá að sjá myndasyrpu frá Eyrinni?
Lag dagsins: Gnarls Barkley - Go-Go Gadget Gospel

Latur bloggari reynir fyrir sér!

22. maí 2006 klukkan 04:16
Já, ég er mættur enn og aftur... Ég hef aftur heyrt að ég sé lélegur bloggari en svona er þetta, maður hefur annað að gera þessa dagana en að vera vesenast í tölvunni og blogga sem er bara vesen...
En ég er samt ekki svo slappur að hætta bara, ég mun halda áfram og reyna standa eitthvað aðeins undir væntingum!

Allt er að ganga upp þessa dagana og er ég mjög sáttur einstaklingur...Hlæjandi
  • Við kepptum á móti Völsung, sem eru deild ofar en við, í bikarnum á fimmtudaginn og gerðum okkur lítið fyrir og unnum 3 - 0, sem var snilld
    • Gísli markmaður komst í sögubækurnar og setti tvö, Ebbe Nygaard skoraði þriðja markið.
  • Vinnan er byrjuð að krafti og er heldur betur mikið að gera á Eyrinni síðustu daga og er ég nokkuð sáttur..!
  • Ragnar Freyr Guðmundsson, Sonurinn, hélt í gærkvöldi afmælisteiti í tilefni af 21. árs afmælinu hans sem var 3. maí og gekk það svona frábærlega og vil ég þakka Ragnari fyrir góða skemmtun
  • Björn Magnús stóð sig vel á gítarnum og á hrós skilið.
  • Afmælið einkenndist af Eurovision lögum, jafnt góðum sem og ekki eins góðum..
    • Frábær lög einsog, Minn hinnsti dans, gleðibankinn og fleiri fengu að óma oftar en einu sinni... algjört gull!
    • Ingvi missti sig í gleðinni og hef ég sjaldan heyrt eins mikinn og góðan flutning á þessum rosalegu lögum, allavegana ekki eins mikla líkamstjáningu Hlæjandi
Ég vil afsaka að ég er ekki með myndir frá partýinu, en myndavélin mín var víst batterílaus þegar ég ætlaði að fara smella af Fýldur

Þetta eru svona síðustu dagar í hnotskurn og nenni ég ekki að koma með einhvern svaka fróðleik núna... Hef ekki staðið mig nógu vel í sniðugum bloggum en ég reyni!

Leikur á þriðjudaginn á móti Neista FC. og hlakka ég mikið til! Reyndar kvíði ég pínu líka því það er spáð sliddu og einsog staðan er núna er byrjað að festa snjó á jörðinni :/

En ég kveð að sinni því það er rosalegur leikur í sjónvarpinu... LeBron og félagar í Cleveland á móti Detroit tröllunum, ég vona innilega að Cleveland taki þetta!


En nóg í dag... kveð að sinni


Frábćr helgi!

15. maí 2006 klukkan 04:39
Daginn, daginn... Kvöldið, kvöldið Brosandi

Drengurinn er hress og mjög svo kátur.. Það hefur nokkuð drifið á daga mína núna uppá síðkastið!

Í stuttu máli fyrir þá sem ekki nenna að lesa hversdagslegt leiðindablogg:
Ég kláraði prófin og er ég ótrúlega ánægður með þann áfanga, m.fl. Tindastóls spilaði fyrsta alvöru leik sumarsins sem fór vel, ég eyddi helginni á akureyri..

Síðustu dagar hafa verið frábærir! Ég kláraði prófin og ég held ég hafi bara staðið mig með sóma.. Átti ekki mikla orku eftir í mínu heilabúi, hefði mátt læra betur fyrir efnafræði en prófið fór einsog ég bjóst við: Klúðraði skilgreiningunumn en rústaði reikningnum
Saklaus

Tercelinn hinn magnaði fór svo með mig alla leiðina á Akureyri eftir vinnu á föstudaginn og lögðum við í boganum.. Þar áttum við leik við Dalvík/Reyni og hefur Tindastóll held ég ekki spilað eins góðan leik síðan ég byrjaði að spila með M.fl. Leikurinn endaði 1 - 6 fyrir okkur og stóðu sig allir frábærlega. Það var mikil barátta í mönnum og börðust allir fyrir liðið. Danirnir stóðu sig ótrúlega vel, betur en við mátti búast og skoraði Thomas Bang þrjú mörk sem er bara snilld! Meira er hægt að lesa um leikinn á www.skagafjordur.com/tindastoll ..

Ég varð svo eftir á Akureyri og fékk ég að búa heima hjá Signýju og var helgin mjög nice.. Ég dreif mig í bíó (MI:III), horfði á gott sjónvarpsefni og átti rólega góða helgi Brosandi

Þannig er líf mitt búið að vera...

Ég vill láta fólk vita af því að ég skal reyna blogga meira, en ég hef fengið slæm viðbrögð frá Guðmundssyni Ingva og oftar en ekki heyrt þessa setningu: ,,Gaur, þú ert lélegur nýr bloggari"

Ég vil minna á leikinn á fimmtudaginn, Tindastóll - Völsungur á Sauðárkróksvelli en þetta er önnur umferð bikarsins!

Ég kveð að sinni með nokkrum myndum sem pabbi tók á leiknum (hægt er að sjá fleir hér):




Prófíll

  • Nafn: Pálmi Ţór Valgeirsson
  • Netfang: palmi88@simnet.is/palmi88@hotmail.com
  • Stađur: Sauđárkrókur / Slagelse
  • Símanúmer: 8935632
  • Atvinna: Nemi/Ráđgjafi hjá Skýrr
  • Hjúskaparstađa: Makalaus alveg hreint!
  • Um mig: Samviskusamur, lítill orkubolti í eins stuttu máli og hćgt er :)
  • Annađ: Elska knattspyrnu og spila međ Tindastóli, mjög félagslyndur og gegndi starfi forseta Nemendafélags FNV. Er í Danmörku í íţróttalýđháskóla og mun vonandi fara í MA eftir áramót, can't wait!