Chelsea enskir meistarar, Ađalgrjót međ veislu :D
30. apríl 2006 klukkan 19:18
Þá er ég mættur til að skrifa í annað sinn...
Það hefur margt verið í gangi í lífi mínu núna síðustu daga og er ég alveg gífurlega ánægður þessa dagana ☺
Síðustu dagar hafa einkennst af litlum skóla, þar sem hann er að klárast, fyrsti nemófundurinnvar og bíð ég spenntur eftir að takast á við þetta starf...
En gærdagurinn er eitthvað sem þarf að fara nokkur orð um.. hann var ótrúlega, ofboðslega góður!
Einsog flestir vita lokar Verslunin Eyri (þar sem ég vinn) kl. 13:00. Kl. 13:08 er ég að klára ganga frá og koma þá ekki vel fullorðin hjón.. Ég lít á þau og það er auðvitað búið að loka, ég vildi komast heim og sjá restina af leiknum.. En nei, þá hleypir e-r þeim inní búðina og ég verð að bíða eftir þeim. Og sú stund var nokkuð löng, þau voru ekkert að kaupa einn pakka skrúfur, eða eina mottu.. neinei, þau voru að versla sér gólflista og tóku sér góðan tíma í að velja þá! Ég orðin vel pissed þegar ég loksins get farið að koma mér heim (svona 20 mín yfir) og keyri nokkuð ákveðið heim..
En næst að leiknum, ég sá ekki nema bara viðbótartímann og verðlaunaafhendinguna, en það var svo þess virði! Fyrr um daginn hafði ég verið hoppandi um af gleði á eyrinni við hvert mark sem Chelsea skoruðu. Þeir tóku Man Utd gjörsamlega í ra**gatið.. Sýndu hvernig á að tryggja meistaratitilinn og gerðu það með stæl! Rúnar Már, Ingvi Hrannar, Signý og þið hin sem haldið með Man Utd. sorry, þið voruð bara yfirspiluð ;)

Enskir meistarar - Chelsea FC
Dagurinn leið og tókum við Friggi uppá ýmsum uppátækjum, sund, ís og fleira...
Kvöldið var frááábært! Aðalgrjót hafði boðið okkur til veislu í tilefni af tvítugsafmæli hans og heppnaðist veislan mjög vel! Maturinn var einn sá besti og svo var félagsskapurinn einnig ofboðslega góður... Strákarnir fóru svo í bæinn og þá fórum ég og rúnar til hans að tjilla, svo á rúntinn og svo aftur til rúnars ogkom ég heim sprækur kl. 4!

Afmælisbarnið að snæðingi:)
En ég kveð að sinni í sigurvímu
Fleiri myndir: www.fotki.com/palmithor og á myndasíðunni hérna fyrir ofan

Chelsea aðdáendurnir í afmælinu: Árni Einar, Ég og Vignir

- Ég vaknaði rétt rúmlega átta sprækur sem lækur
- Tók mig til fyrir æfingu sem var klukkan níu
- Kom við í millitíðinni og verslaði aðeins við Ragnhildi í bakaríinu
- Dreif mig í vinnuna eftir æfingu kl. 10
- Setti Live Commentary (www.soccernet.com) á því Chelsea - Man Utd. var innnan seilingar.
Einsog flestir vita lokar Verslunin Eyri (þar sem ég vinn) kl. 13:00. Kl. 13:08 er ég að klára ganga frá og koma þá ekki vel fullorðin hjón.. Ég lít á þau og það er auðvitað búið að loka, ég vildi komast heim og sjá restina af leiknum.. En nei, þá hleypir e-r þeim inní búðina og ég verð að bíða eftir þeim. Og sú stund var nokkuð löng, þau voru ekkert að kaupa einn pakka skrúfur, eða eina mottu.. neinei, þau voru að versla sér gólflista og tóku sér góðan tíma í að velja þá! Ég orðin vel pissed þegar ég loksins get farið að koma mér heim (svona 20 mín yfir) og keyri nokkuð ákveðið heim..
En næst að leiknum, ég sá ekki nema bara viðbótartímann og verðlaunaafhendinguna, en það var svo þess virði! Fyrr um daginn hafði ég verið hoppandi um af gleði á eyrinni við hvert mark sem Chelsea skoruðu. Þeir tóku Man Utd gjörsamlega í ra**gatið.. Sýndu hvernig á að tryggja meistaratitilinn og gerðu það með stæl! Rúnar Már, Ingvi Hrannar, Signý og þið hin sem haldið með Man Utd. sorry, þið voruð bara yfirspiluð ;)

Enskir meistarar - Chelsea FC
Dagurinn leið og tókum við Friggi uppá ýmsum uppátækjum, sund, ís og fleira...
Kvöldið var frááábært! Aðalgrjót hafði boðið okkur til veislu í tilefni af tvítugsafmæli hans og heppnaðist veislan mjög vel! Maturinn var einn sá besti og svo var félagsskapurinn einnig ofboðslega góður... Strákarnir fóru svo í bæinn og þá fórum ég og rúnar til hans að tjilla, svo á rúntinn og svo aftur til rúnars ogkom ég heim sprækur kl. 4!

Afmælisbarnið að snæðingi:)
En ég kveð að sinni í sigurvímu
Fleiri myndir: www.fotki.com/palmithor og á myndasíðunni hérna fyrir ofan

Chelsea aðdáendurnir í afmælinu: Árni Einar, Ég og Vignir
Ný bloggsíđa og kosningar NFNV 2006
26. apríl 2006 klukkan 23:26
Góðan daginn og verið velkominn á þessa vonandi góðu bloggsíðu..
Ég kem til með að reyna að vera svona nokkuð aktívur í blogginu, þá helst um íþróttirnar, líf mitt og jafnvel ýmsar pælingar!
Ég er núþegar búinn að henda inn “prófílnum” mínum, eða svona helstu upplýsingum um mig. Ég kem svo tilmeð að henda inn myndum af góðum atburðum og kannski henda inn nokkrum tenglum.
Ég hef ekkert bloggað áður því mér hefur ekki líkað við þau svæði sem áður hafa verið í gangi, blog.central.is og folk.is... En ég er mjög sáttur við bloggari.is og kem til með að nota þetta alveg af þónokkru viti held ég.
Í dag voru kosningar Nemendafélags FNV fyrir næsta vetur. Eftirtaldir buðu sig fram:
• Ég, Pálmi Þór í formann nemendafélags.
• Guðrún Eik í ritara
• Ragnhildur sem ristjóri (molduxa, ómen o.fl)
• Ásta í gjaldkera nemó, sem og Arnar Ingi.
• Teitur Ingi, Adam Smári og Þröstur í tæknimann
• Konráð (Konni) og Björn Ingi (Bjössi djamm.net) í skemmtanastjóra
• Og síðast en ekki síst, Ingvi Guðmunds. í íþróttaformann.
Þar sem engir aðrir buðu sig fram í formann, ritara, ritstjóra og íþróttaformann vorum við fjögur sjálfkjörin. Ég hlakka mjög til að takast á við þetta starf næsta vetur og vonast ég til að fá stuðning sem flestra.

Fyrir kosningar vorum við frambjóðendur látin taka áskorun, drekka ógeðisdrykk sem samanstóð af: Mjólk, hráu eggi, sardínum, hvítlaukssafa og fleira ógeði
Stjórn nemó árið 2006 var svo endanlega ráðin en hana skipa:
• Pálmi Þór - Formaður
• Guðrún Eik - Ritari
• Ingvi - Íþróttaformaður
• Teitur Ingi - Tæknimaður
• Konni - Skemmtanastjóri
• Ragnhildur - Ritstjóri Molduxa
• Ásta - Gjaldkeri
Þá er það komið á hreint og bara flott nemendaráð sem verður hér næsta vetur. Við munum koma til með að reyna eins vel og við getum að gera félagslífið eins gott og við getum.
Aðeins status í fótboltanum... Danirnir á næsta leiti, þeir koma um miðjan maí. Næsti planaði leikur er 12. Mars á móti Dalvík/Reyni, bikarleikur sem verður væntanlega spilaður í boganum Akureyri. Þar mun væntanlega einn Dananna spila, Mark Christiansen.
Þá er þetta komið nóg svona í fyrsta skipti...
Endilega skiljið eftir skoðanir ef þið hafið eitthvað að segja og tjáið ykkur að vild..