Leit

Auglýsing

Hef ekki bloggađ í Ágúst?

23. ágúst 2006 klukkan 03:02
Jæja... ég er latur bloggari! Ég viðurkenni það hér með í fyrsta sinn...
En latur bloggari er skárri en enginn bloggari? Eða hvað?

En allavega hefur margt og mikið drifið á mína daga þar sem þessir dagar hafa verið svo margir! Ekkert merkilegt samt, ekkert að neinu viti..

Eyrin er einsog venjulega... Oft mikið hlegið, tímar sem vitlaust er að gera, tímar sem ekkert er að gera og svo auðvitað kaffitímar og kaffidrykkja.

Unnum tvo síðustu leikina í fótboltanum þrátt fyrir að spila neitt sérstaklega í fyrri leiknum, en okkur tókst þónokkuð vel upp seinni leikinn, sem við unnum 3-1. En núna er fótboltinn er búinn og ég er eiginlega strax byrjaður að sakna hans, var á línunni hjá þriðja flokki í dag og mig langaði fátt meira en að fá að vera með inná vellinum, tækla nokkra Þórsara niður og spila minn leik. Tindastóll unnu 2-1 og voru þeir sterkari aðilinn allan leikinn.  
Næsta fótboltamót sem ég tek þátt í er framhaldsskólamótið og þá verður sko spiluð knattspyrna og svo auðvitað djamm um kvöldið! Þessi mót hafa alls, alls ekki klikkað tvö síðustu ár og hafa þetta verið þær helgar sem ég skemmti mér eins vel og ég get síðustu tvö ár, snilld !

Þetta er akkúrat svona leiðindablogg, fólk er byrjað að suða um blogg í skoðanir... Það fólk fer oft aðeins í taugarnar á mér þegar ég les þessar skoðanir (A) en svo kemst ég að því að ég vil líka fá blogg frá þeim... þannig að þetta kemur aftur upp á mér..

Ég hef ekki frá neinu sérstöku að segja.. Nema kannski það að vinnan er að klárast og skólinn að byrja. Ég hlakka ótrúlega til, við í Nemó erum á fullu í skipulagningu og samningaviðræðum og held ég að fyrsta vikan verði ótrúlega erfið en hinsvegar alveg frábær! Myndatökur á mánudeginum og þriðjudeginum, ogvodafonedagur, fimmtudagurinn verður bókamarkaður og svo á föstudeginum aðalmálið.. busavígslan sjálf! Busar endilega látið í ykkur heyra í skoðunum og gefið mér góðar hugmyndir af nasty gildrum og þrautum ;)

Endilega komiði líka með hugmyndir að atburðum sem þið viljið að séu haldnir og látið í ykkur heyra og verið active þegar þið byrjið í skólanum!

Ég ætla að uppfylla ósk Ingva en hann bað mig að enda bloggið á þessum orðum: “Svo vil ég bara undirstrika fegurð Ingva”.....

Fegurð Ingva

Ég ađ blogga í vinnunni? Stórt tilefni!

01. ágúst 2006 klukkan 18:17
Friggi var tekinn í bóndabeygju... Hér fáiði að sjá það!
Friggi var tekinn í bóndabeygju

Viltu fá myndina stærri? Stærri?

Prófíll

  • Nafn: Pálmi Ţór Valgeirsson
  • Netfang: palmi88@simnet.is/palmi88@hotmail.com
  • Stađur: Sauđárkrókur / Slagelse
  • Símanúmer: 8935632
  • Atvinna: Nemi/Ráđgjafi hjá Skýrr
  • Hjúskaparstađa: Makalaus alveg hreint!
  • Um mig: Samviskusamur, lítill orkubolti í eins stuttu máli og hćgt er :)
  • Annađ: Elska knattspyrnu og spila međ Tindastóli, mjög félagslyndur og gegndi starfi forseta Nemendafélags FNV. Er í Danmörku í íţróttalýđháskóla og mun vonandi fara í MA eftir áramót, can't wait!